Um námskeiðið

Fjallamennska 1

Staðsetning:
Verð:
Leiðbeinendur:

Enginn leiðbeinandi skráður á þetta námskeið

Búðardalur Almennt: 65.205 kr.
Verð fyrir einingar: 22.680 kr.
 
Markmið og uppsetning
Réttindi Þetta námskeið veitir engin réttindi.
Kennsla Námskeiðið er hugsað sem helgarnámskeið sem hefst á bóklegum fyrirlestri, upplýsingagjöf og æfingum innandyra áður en haldið er til fjalla. Bókleg kennsla skal fara fram áður en farið er í verklegar æfingar utandyra. Í bóklega þættinum skal leitast við að útskýra viðfangsefnið á einfaldan og myndrænan hátt með aðstoð kennsluefnis SL. Verkleg kennsla fer fram við vetraraðstæður í fjalllendi. Rétt er að taka fram að á námskeiði sem þessu skal alltaf hafa öryggi nemenda að leiðarljósi og velja kennsluaðstöðu m.t.t. þess. Leiðbeinendur á námskeiðinu skulu hafa öðlast leiðbeinendaréttindi í fjallamennsku skv. reglum Björgunarskóla SL. Til að námskeið í fjallamennsku geti farið fram verður að vera hægt að komast í fjalllendi þar sem vetraraðstæður ríkja. Snjór þarf að vera í brekkum svo að hægt sé að kenna notkun ísaxar og mannbrodda, ásamt snjótryggingum.


Tímasetning:
Nánar:
Tímafjöldi: 20 klukkustundir Tegund: Grunnnámskeið Réttindi Enginn
Fyrsti tími: 8. nóvember 2019, kl. 19:00 Svið: Fjallamennska Lágmarksaldur 17
Síðasti tími: 10. nóvember 2019, kl. 17:00 Braut: Björgunarmaður 1 Gildistími 0

Lýsing á námskeiði Á Fjallamennsku 1 eru kennd grunnatriði í ferðalögum um fjalllendi að vetri til. Farið yfir helstu hættur og nemendum kennd undirstöðuatriði í lestri á landslagi, sem og umhverfisvitund. Þá er farið yfir það hvernig skal að bera sig að í fjalllendi og sérstaklega er farið yfir notkun ísaxar og mannbrodda ásamt helstu snjótryggingum. Námskeiðið er grunnnámskeið í fjallamennsku og nýtist öllum þeim sem ferðast um fjalllendi að vetrarlagi.
Bók frá SL um fjallamennsku. Í verklegum þætti námskeiðsins þarf hver nemandi að hafa meðferðis: Ísexi, mannbrodda, klifurbelti, hjálm, snjóflóðaýli, sigtól, prússiklykkju og 2-3 læstar karabínur.
Engar.
Mat Gátlisti með verkefnum sem nemandi leysir af hendi og leiðbeinandi metur. Þau atriði sem nemendi þarf að kunna skil á eru fyrirfram upplistuð.

Athugasemdir:
Umbeðið af einingu


Fylgiskjöl: